Félagsmálanámskeið

Frá Slysavarnadeild kvenna, Dalvík

Félagsmálanámskeið

Félagsmálanámskeið verður haldið á vegum Slysavarnadeildar kvenna laugardaginn 30. september n.k.

Námskeiðið verður öllum opið.

Farið verður í fundarsköp, hlutverkaskipan, markmið og fleira

sem kemur að góðu gagni þeim sem starfa að félagsmálum.

Námskeiðið verður ca. 4-5 klst og hefst kl. 10:00.

Verð fyrir félaga innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar er kr. 2000.-

en fyrir aðra 3.000.-  Innifalið í verði eru léttar veitingar.

Upplýsingar og skráning er hjá Margréti Láru í síma 4661905.

Síðasti skráningardagur mánudagur 25. september.

Hvetjum fólk sem hefur áhuga á félagsstörfum að fjölmenna!