Fasteignagjöld og útsvar árið 2015

Útsvarsprósenta árið 2015 er 14,52%

Álagning fasteigna- og þjónustugjalda 2015

Álagning gjalda
Álagning fasteignaskatts og lóðarleigu byggist á fasteignamati húsa og lóða í Dalvíkurbyggð frá 1. febrúar 2014. Matið er framkvæmt af Þjóðskrá Íslands samkvæmt V. kafla laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001. Álagning fasteignagjalda og leiðréttingar fer fram á vegum umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar en fjármála – og stjórnsýslusvið sér um reikningagerð og innheimtu. Álagning vatnsgjalds, fráveitugjalds og sorphirðugjalds er samkvæmt sérstökum gjaldskrám, en þær má nálgast hér http://www.dalvikurbyggd.is/Stjornsysla/Fjarmala--og-stjornsyslusvid/Gjaldskrar-A---O/

Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur
Íbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.

Fasteignaskattur A 0,49% af fasteignamati húss og  lóðar
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá
Sorphirðugjald kr. 31.982.- á íbúð

 

Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur

Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005

Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá

Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-flokkur

Aðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.

Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá

Lóðarleiga

Lóðarleiga íbúðarhúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar
Lóðarleiga atvinnulóða 2,90% af fasteignamati lóðar
Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar

Vatnsgjald
Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:

a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 8.184,40 kr. pr. íbúð og 193,52,- kr. pr. fermetra húss.
b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 16.296,80 kr. pr. eign og 193,52 kr. pr. fermetra húss.
c) Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
d) Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,2% af fasteignarmati allra húsa og lóða.


Fráveitugjald
Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins.

a) Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 12.222,60 kr. pr. íbúð og 275,01 kr. pr. fermetra húss.
b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 30.556,49 kr. pr. eign og 275,01 kr. pr. fermetra húss.
c) Árlegt rotþróargjald verði, fast gjald kr 12.222,60 kr. pr. losunarstað og þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár er kr. 11.205,05.
d) Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða.


Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendur út á pappírsformi nema til þeirra sem þess óska sérstaklega. Greiðslukröfur birtast í heimabönkum og reikningar eru aðgengilegir rafrænt á Mín Dalvíkurbyggð( http://min.dalvikurbyggd.is/). Innskráning er með Íslykli eða rafrænu skilríki.


Álagningarseðlar fasteignagjalda.
Álagningarseðlar fasteignagjalda eru almennt ekki sendir út á pappírsformi nema til þeirra sem þess óska sérstaklega. Álagningarseðlar eru aðgengilegir greiðendum á Island.is (https://www.island.is/) og Mín Dalvíkurbyggð (http://min.dalvikurbyggd.is/ ). Innskráning er með Íslykli eða rafrænu skilríki.


Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar, í síma 460-4900 eða á www.dalvikurbyggd.is