Er ekki tími til kominn að klippa?

Er ekki tími til kominn að klippa?

Öll viljum við geta komist auðveldlega um gangstéttar og göngustíga byggðalagsins.
Sumstaðar vex trjágróður á lóðum það mikið út fyrir lóðarmörk að vandræði og jafnvel hætta stafar af. Þetta á við um bæði umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda. Einnig eru dæmi um að trjágróður skyggi á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu.

Þá er starf skóla byggðalagsins farið á fullt og því fylgir aukin umferð vegfarenda. Það skiptir gríðarlega miklu máli að allir séu sjáanlegir í umferðinni og geti óhindrað gengið á gangstéttum, þá ekki síst yngstu skólabörnin sem eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni. 

Mikill trjágróður getur einnig tafið snjómokstur og valdið skemmdum á tækjum sem eru notuð til að þjónusta bæjarbúa.

Vaxi gróður út fyrir lóðarmörk þarf lágmarkshæð yfir gangstétt eða gangstíg vera 2,8 metra og 4,5 metrar yfir akbraut.

Sviðsstjóri og starfsmenn Eigna- og framkvæmdadeildar vilja hvetja íbúa Dalvíkurbyggðar til að hafa þessi mál í lagi og snyrta trjágróður á lóðarmörkum eftir því sem þörf er á. Þá skal snyrtingu gróðurs vera lokið fyrir 20. september en eftir þann tíma má búast við að gróður verði fjarlægður á kostnað lóðarhafa.