Davíð Þór 5 ára

Davíð Þór 5 ára

Í dag, 28. ágúst, er Davíð Þór 5 ára. Hann bjó til glæsilega kórónu, bauð börnunum upp á ávexti í ávaxtastundinni og flaggaði íslenska fánanum. Við sungum svo auðvitað fyrir hann afmælissönginn. Við óskum Davíð Þór og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn.