Dalvíkurskóla vantar kennara á miðstig/unglingastig

Dalvíkurskóla vantar kennara á miðstig/unglingastig
Dalvíkurskóla vantar kennara á miðstig/unglingastig vegna forfalla frá 20. feb. 2017 – 2. júní 2017.
 
Hæfniskröfur:
● Grunnskólakennarapróf
● Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
● Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
● Hefur frumkvæði og metnað í starfi og getu til að vinna í teymi
● Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
● Tilbúinn að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
 
Dalvíkurskóli er 220 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking og færni - virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og PALS. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni.
 
 
Umsóknarfrestur er til 23. desember 2016
 
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 460 4980 og 863 1329. Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.