Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir upplýsingamiðstöð í Bergi

Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir upplýsingamiðstöð í Bergi

Dalvíkurbyggð auglýsir laust til umsóknar 81% starf í upplýsingamiðstöð sem staðsett er í Menningarhúsinu Bergi.

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun. Ráðningartímabilið er frá miðjan maí fram í miðjan september og er unnið á föstum vöktum og annan hvern laugardag.

Starfsmaður verður í daglegum samskiptum við ferðamenn af ólíkum þjóðernum og er góð tungumálakunnátta því afar mikilvæg. Upplýsingamiðstöðin og Bókasafn Dalvíkurbyggðar vinna í nánu samstarfi og nær hluti af starfi starfsmanns í upplýsingamiðstöð einnig yfir verkefni á bókasafninu. Umsækjandi þarf því að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúin að sinna verkefnum á bókasafni til jafns á við verkefni upplýsingamiðstöðvar.

Helstu verkefni á upplýsingamiðstöð snúa að upplýsingagjöf til ferðamanna og samskipta við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Starfsmaður mun bera ábyrgð á framboði bæklinga í upplýsingamiðstöð ásamt því að halda skráningu á gestum sem sækja miðstöðina.

Mikilvægt er að umsækjandi búi yfir mikilli tölvufærni og geti nýtt sér upplýsingatækni í starfi. Mikil áhersla er lögð á frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð. Umsækjandi þarf að hafa ríka þjónustulund og sýna framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Að lokum er farið fram á þekkingu á ferðaþjónustu og er staðbundin þekking einnig æskileg. Reynsla af sambærilegum störfum er ekki skilyrði en álitið sem kostur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknum ásamt ferilskrá má skila á Bókasafn Dalvíkurbyggðar eða á netfangið: bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is. 

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Eldjárn í síma 4604930/8667255 eða á netfanginu bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is