Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir Hvol, Byggðasafn Dalvíkurbyggðar

Dalvíkurbyggð leitar eftir sumarstarfsmanni fyrir Hvol, Byggðasafn Dalvíkurbyggðar

Byggðasafn Dalvíkurbyggðar auglýsir laust til umsóknar helgarvinnu í sumarafleysingum á Byggðasafninu Hvol sem staðsett er á Dalvík.

Ráðningartímabilið er frá lok maí fram í enda ágúst og er unnið aðra hvora helgi frá 11-18. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun.

Við óskum eftir starfsmanni með góða tungumálakunnáttu þar sem verður í oft daglegum samskiptum við safngesti af ólíkum þjóðernum. Æskilegt er að umsækjandi búi yfir góðri tölvufærni og geti nýtt sér upplýsingatækni í starfi. Mikil áhersla er lögð á frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð. Umsækjandi þarf að hafa ríka þjónustulund og sýna framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Þekking og áhugi fyrir sögu of safnamálum ásamt staðbundinni þekkingu er æskileg. Reynsla af sambærilegum störfum er ekki skilyrði en álitið sem kostur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 15 apríl. Umsóknum ásamt ferilskrá má skila á Bókasafn Dalvíkurbyggðar eða á netfangið: bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is. 

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Eldjárn í síma 4604930 eða á netfanginu bjork.eldjarn@dalvikurbyggd.is