Dalvíkurbyggð lækkar leikskólagjöld um 20%.

Dalvíkurbyggð lækkar leikskólagjöld um 20%.

8 tíma gjald lækkar um tæpar 5 þúsund krónur á mánuði.

Fyrsta verk nýkjörinnar bæjarstjórnar í Dalvíkurbyggð var að lækka leikskólagjöld í sveitarfélaginu um 20% frá og með næstu mánaðarmótum. Þetta er liður í þeirri viðleitni að Dalvíkurbyggð verði alltaf samkeppnisfær þegar kemur að aðstæðum barnafjölskyldna.

Sem dæmi um lækkun gjalda við þessa breytingu þá lækkar gjald fyrir 8 tíma vistun um kr. 4.759. Fyrir einstæða foreldra verður 8 tíma gjaldið eftir þessa breytingu kr. 14.278

 Nánari upplýsingar veitir Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri, í síma 460 4902