Dalvíkurbyggð auglýsir laust starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa

Dalvíkurbyggð auglýsir laust starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða þjónustu- og upplýsingafulltrúa á Fjármála- og stjórnsýslusvið í 100% starf. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að þróast áfram í starfi og aðlaga sig að breyttu starfsumhverfi á hverjum tíma. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið:

  • Ritstjórn heimasíðu  og umsjón með vefmiðlum.
  • Tekur þátt í uppbyggingu á rafrænni stjórnsýslu og upplýsingatækni.
  • Markaðssetning á Dalvíkurbyggð og gerð kynningarefnis.
  • Almenn upplýsingagjöf í þjónustuveri.
  • Starfsmaður atvinnumála- og kynningarráðs.
  • Móttaka og skráning reikninga.
  • Þátttaka í stefnumótun.
  • Ýmis tímabundin verkefni .

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólapróf er æskilegt.
  • Góð þekking og reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er kostur.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni skilyrði.
  • Gott vald á íslensku og  færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Skipulagshæfileikar, nákvæm vinnubrögð og árverkni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Metnaður til árangurs og jákvæðni.

 

Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2018.

 

Umsóknum skal skila til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs á netfangið gp@dalvikurbyggd.is.  Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, (gp@dalvikurbyggd.is) eða í síma 460-4903.

 

Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitarfélag við Eyjafjörð.

Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.

Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.