Byrjendakennsla hjá Skíðafélagi Dalvíkur

Áætlað er að byrjendakennsla hefjist föstudaginn 6. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið verður í fimm daga og er stefnt að því að annað námskeið verði í lok janúar. Námskeiðið er ætlað fyrir börn fædd árið 2007 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir miðvikudaginn 4. janúar. Námskeiðsgjald er 9.000 kr. og er leiktímagjald innifalið í því. Um leið og börnin eru orðin sjálfbjarga í lyftur færast þau yfir í leiktímana sem boðið er uppá í allan vetur fyrir börn fædd 2006 og 2007 og eru sjálfbjarga í lyftur. Námskeiðsgjald greiðist í fyrsta tíma.
Sjá nánar á heimasíðu skíðasvæðisins www.skidalvik.is