Byggðaráð harmar lokun á útibúi Húsasmiðjunnar á Dalvík

Byggðaráð harmar lokun á útibúi Húsasmiðjunnar á Dalvík

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar harmar þær fregnir að loka eigi útibúi Húsasmiðjunnar á Dalvík. Með þeirri lokun tapast ekki bara störf úr sveitarfélaginu heldur er um gríðarlega þjónustuskerðingu að ræða. Verslunin á Dalvík hefur þjónað verktökum og íbúum á svæðinu frá Akureyri og út á Siglufjörð til fjölda ára og er því um hagsmunamál að ræða fyrir fleiri heldur en bara verktaka og íbúa í Dalvíkurbyggð. Sem dæmi má nefna að verslunin á Dalvík er eina timburafgreiðslan við utanverðan Eyjafjörð og með lokun hennar verður einungis hægt að versla timbur á Akureyri.

Byggðaráð skorar á Húsasmiðjuna að endurskoða þessa ákvörðun sína og gera sitt til að viðhalda því góða þjónustustigi sem er á svæðinu.