Börkur Árnason og Birkir Árnason taka þátt í hinu árlega Mont Blanc-hlaupi

Börkur Árnason og Birkir Árnason taka þátt í hinu árlega Mont Blanc-hlaupi

Börkur og Birkir Árnasynir ásamt tveimur Íslendingum öðrum eru komnir til Chamonix í Frakklandi þar sem þeir munu taka þátt í Tour Du Mont-Blanc sem er 166 kílómetra fjallahlaup (með samtals 9400m. hækkun) í kringum Mont-Blanc. Hlaupaleiðin liggur um fjöll og firnindi í Ölpunum, gegnum þrjú lönd, Frakkland, Sviss og Ítalíu.
Tímamörk í hlaupinu eru 46 klst. sem þýðir að ef hlauparar eru ekki komnir í mark innan þess tíma þá falla þeir úr keppni. Margir góðir Ultra maraþonhlauparar hafa átt í mestu vandræðum með að klára hlaupið.
U.þ.b. 2200 manns eru skráðir í hlaupið og samkvæmt reynslu undanfarinna ára má búast við að aðeins rúmur helmingur þátttakenda komist alla leið.
Hlaupið byrjar klukkan 16:30 að íslenskum tíma, föstudaginn 29. ágúst en um morguninn kl. 09:00 að íslenskum tíma verður startað í hálfan hring (98 kílómetra).
Þeir Börkur Árnason, Birkir Árnason og Ásgeir Elíasson ætla að hlaupa allan hringinn en Bryndís Baldursdóttir mun hlaupa hálfan hring sem er 98 kílómetrar og samtals 5400m. hækkun. Þar eru tímamörkin 26 klst.
Börkur og Birkir hafa báðir farið þetta hlaup áður. Birkir hljóp hálfan hring í fyrra á 18 klukkustundum og 32 mínútum og Börkur heilan hring á 35klst. Og 41mín. Hann stefnir á að bæta sig verulega nú. Ásgeir hefur farið Ironman og ACT – 5 daga ævintýrakeppni á Grænlandi. Bryndís Baldursdóttir er eina íslenska konan sem hefur farið Ironman, hún hljóp einnig 100 km. hlaup í mars sl.
Hægt verður að fá fréttir af hlaupinu fyrir, eftir og meðan á því stendur á: http://utmb2008.blog.is og Heimasíða keppninnar er : http://ultratrailmb.com