Ball í Glerárskóla

Kæru vinir. Eins og allir vita þá ætlum við á ball í Glerárskóla á fimmtudaginn. Forsala miða er hjá Magga og athugið að takmarkaðir miðar eru í boði. Ballið hefst klukkan 20:30 og ætlum við því að mæta upp í Dalvíkurskóla klukkan 19:50. Þið sem eruð búsett á Hauganesi og á Árskógarsandi verðið sótt upp í Árskógarskóla klukkan 20:10. Ballið er til 23:30 og komum við því heim rétt eftir miðnætti. Þá munum við fyrst stoppa upp í Árskógarskóla og renna svo inn í Dalvíkurskóla. Mætið tímanlega!