Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2018/2019

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2018/2019

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 685/2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019.

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögumsbr.auglýsingu nr. 141/2019 í Stjórnartíðindum

  • Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur, Hauganes)
  • Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
  • Tálknafjörður
  • Sveitarfélagið Skagafjörður (Sauðárkrókur, Hofsós)

Eftirfarandi sveitarfélag hefur ákveðið að byggðakvóta skuli úthlutað samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 685/2018 (þ.e. engar sérreglur):

  • Vopnafjörður

 

Umsóknargátt fyrir byggðakvóta 

Eyðublað fyrir samning við vinnslu 

Leiðbeiningar:

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina  hér að ofan.  Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

Samningur um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.

Senda skal vinnslusamninginn á byggdakvoti@fiskistofa.is

Umsækjendur eiga þá að fá sjáflvirka svarsendingu með staðfestingu á móttöku vinnslusamningsins.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Samningum þarf að skila áður en umsóknarfrestur  er liðinn.  

Nánari upplýsingar 

Umsókn er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina.  Vinnslusamningi skal skila í tölvupósti á byggdakvoti@fiskistofa.is

 

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019