Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2014/2015

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 652/2014 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2014/2015

Vesturbyggð (Patreksfjörður)
Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
Akureyri (Hrísey og Grímsey)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 999/2014 í Stjórnartíðindum

Vesturbyggð (Brjánslækur/Barðaströnd og Bíldudalur)
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur og Hauganes)
Strandabyggð (Hólmavík)
Sveitarfélagið Hornafjörð

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2014.

Fiskistofa 14. nóvember 2014