Auglýsing um fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022

Auglýsing um fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022

Á  304. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 11. júní 2018 var samþykkt sú tillaga að fundir sveitarstjórnar verði að jafnaði haldnir þriðja þriðjudag hvers mánaðar í Ráðhúsi Dalvíkur, í Upsa á 3. hæð kl. 16:15, og verði auglýstir með tveggja daga fyrirvara á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.  Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir  luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls, sbr. 12. gr. Samþykktar um stjórn  Dalvíkurbyggðar.

Á sami fundi sveitarstjórnar var samþykkt  tillaga um frestun funda sveitarstjórnar í júlí og ágúst 2018 með vísan í 8. gr. Samþykktar um stjórn  Dalvíkurbyggðar.  Byggðarráði var falið fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar,  frá og með 12. júní 2018 og til og með 31.  ágúst 2018.

Dalvíkurbyggð,  29. júní 2018

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs