Árskýrslur félagasamtaka fóru fyrir íþrótta-, æskulýðs- og menningarráð í gær

Í gær mættu á fund Íþrótta-, æskulýðs- og menningarráðs fulltrúar frá félögum sem hafa samning við Dalvíkurbyggð og fluttu þeir ársskýrslu og gerðu grein fyrir reikningum félaganna fyrir árið 2006:

  • Sundfélagið Rán                                 Elín Unnarsdóttir
  • Golfklúbburinn Hamar                         Sigurður Jörgen
  • Hestamannafélagið Hringur                Ekki mætt fyrir félagið
  • Skíðafélag Dalvíkur                             Óskar Óskarsson
  • Ungmennafélagið Reynir                     Marinó Þorsteinsson.
  • Ungmennafélag Svarfdæla                 Þórir Áskelsson f.h. barna- og unglingaráðs
  • Ungmennaf. Þorsteinn Svörfuður       Karl Ingi Atlason.

Framk kemur í fundargerð ráðsins að ársreikningur og ársskýrsla fyrir árið 2006 barst frá Hestamannafélaginu Hring fyrr á árinu. Fyrir liggur ársreikningur 2006 frá körfuknattleiksdeild UMFS og ársreikningur og starfsskýrsla 2006 frá frjálsíþróttadeild UMFS.  Fram kom á fundinum að ársreikningur 2006 fyrir barna- og unglingaráð UMFS liggur fyrir.

Ráðið þakkar félögunum fyrir vel unnin störf og stjórnarmönnum og félagsmönnum sjálfsboðavinnu í þágu félaganna sem og sveitarfélagsins.