Árlega hunda- og kattahreinsun

Árlega hunda- og kattahreinsun

Árleg hunda- og kattahreinsun fer fram í Dalvíkurbyggð dagana 31. október og  1. og 7. nóvember 2018, frá kl.16:00 – 18:00 alla dagana.

Kattahreinsun fer fram miðvikudaginn 31. október

Hundahreinsun fer fram fimmtudaginn 1. nóvember og miðvikudaginn 7. nóvember.

Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda- og kattahald er eigendum skylt að örmerkja dýrin. Samhliða hreinsuninni verður boðið upp á, gegn gjaldi, að örmerkja þau dýr sem ekki hafa verið örmerkt.

Framvísa þarf kvittun fyrir greiðslu leyfisgjalda.

Hreinsun fer fram í áhaldahúsi Hitaveitu Dalvíkur við Sandskeið.

Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.