Árleg vorhreinsun 26.-29.maí

Árleg vorhreinsun 26.-29.maí

Árviss vorhreinsun í Dalvíkurbyggð hefst núna föstudaginn 26. maí til 29. maí en þá taka allir höndum saman, íbúar og bæjarstarfsmenn, um að hreinsa og fegra bæinn. Bæjaryfirvöld hvetja íbúa Dalvíkurbyggðar til að hreinsa lóðir sínar. Starfsmenn bæjarins verða svo á ferðinni á þessum tíma og fjarlægja garðúrgang sem fólk hefur sett utan við lóðarmörk sín. Einnig er bent á garðaúrgangsgáma á gámasvæðinu á Dalvík, við Ægisgötu 25 á Árskógssandi og við Aðalgötuna á Hauganesi. Almennt sorp sem fólk safnar saman á opnum svæðum á að fara í poka og setja á áberandi stað þar sem bæjarstarfsmenn fjarlægja það síðan. 

Athugið:

  • Garðaúrgang skal setja út við lóðamörk í pokum, greinaafklippur (langar greinar) skal binda í knippi.
  • Óheimilt er að flytja lausan jarðveg út fyrir lóðamörk og verður slíkt fjarlægt á kostnað lóðarhafa.
  • Rusl af byggingarlóðum verður ekki fjarlægt.
  • Íbúar þurfa sjálfir að koma spilliefnum í endurvinnslustöð, enn fremur timbri, málum og öðru rusli.
  •  Heil tré eða trjástofna verða ekki fjarlægðir af starfsmönnum sveitafélagsins.

Járn:

  • Brotajárn á að fara í járnagáma á gámasvæði. Bændur eru hvattir til að fara með allt brotajárn að þjóðvegi þar sem það verður sótt.

Bifreiðar, bílflök og aðrir lausafjármunir:

  • Á sama tíma mun Heilbrigðiseftirlitið líma tilkynningu um að fjarlægja bifreiðar og lausafjármuni sem standa á víðavangi og í kjölfarið láta fjarlægja það á kostnað eigenda ef ekki verður brugðist við

Gámar:

  • Gámaeigendur eru beðnir um að fjarlægja alla lausmuni ofan af gámum og það sem liggur í kringum þá. Að öðrum kosti verður það fjarlægt á kostnað eigenda.

 

Valur Þór Hilmarsson
Umhverfisstjóri