Áramótakveðja til íbúa Dalvíkurbyggðar

Áramótakveðja til íbúa Dalvíkurbyggðar

Um áramót er okkur tamt að hugsa til baka. Um það sem framkvæmt var, af því sem ætlað var og einnig þau verkefni sem komu upp í hendurnar á okkur án þess að kallað væri eftir þeim sérstaklega. Hvernig náðum við að leysa úr hlutunum? Hvað var vel gert og hvað hefði mátt betur fara? Við hugsum til þeirra sem búa við missi eða sorg, reynum að styðja við náungann og sýna samkennd. Það er gott að búa í nálægð við þá sem við þekkjum, þar sem við erum hluti af heild, erum bitar í púsluspili samfélagsins, höfum hlutverk og leitumst við að rækja það af kostgæfni.

Handan við hornið er nýtt ár með nýjum áskorunum og nýjum tækifærum. Þá er gott að horfa fram á við og skoða hvernig mann langar til að nýta tímann sem best og hvaða leiðir maður ætlar að fara til að ná settum markmiðum. Hvernig við getum bætt okkur sem manneskjur og látið gott af okkur leiða, okkur sjálfum og samfélaginu til heilla.

Fyrir Dalvíkurbyggð er von mín sú að við náum að skapa betri tækifæri og aðstæður til að ungt fólk geti snúið til baka úr námi og sest að á sínum heimaslóðum. Að það hafi meiri möguleika á vinnu við hæfi og að það séu fjölbreyttir búsetukostir í boði fyrir þá sem vilja flytja í Dalvíkurbyggð. Önnur umgjörð er til staðar, fjölbreytt mannlíf og menningarlíf, góðir skólar, frábærar aðstæður til íþróttaiðkunar og útivistar hvers konar og svo mætti áfram telja. Forréttindin eru svo öryggið, friðsældin, náttúran og nálægðin við fólkið sitt og heimahagana.

Megi nýja árið færa ykkur öllum farsæld, hamingju, gæfu og gleði.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.