Alþingiskosningar í Dalvíkurbyggð 29.október 2016 - kjörskrá

Kjörskrá vegna alþingiskosninga 29. október n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá og með 19. október og fram á kjördag í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá Þjóðskrá 24. septemer 2016. Einnig er bent á vefinn https://www.kosning.is  þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvar og hvort einstaklingur er á kjörskrá.

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar á opnunartíma fram á kjördag.

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð Bjarni Th. Bjarnason