Alþingiskosningar 29. október 2016 - kjörfundur

Kjörfundur vegna kosningar til Alþingis verður í Dalvíkurskóla laugardaginn 29. október 2016. Gengið er inn að vestan. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Kjósendur eru beðnir um að hafa tiltæk skilríki til að gera grein fyrir sér.

 

Kjörstjórn Dalvíkurbyggðar. Felix Jósafatsson, Ingvar Kristinsson, Ingibjörg María Ingvadóttir.