Alþingiskosningar 28.október 2017 - kjörskrá

Alþingiskosningar 28.október 2017 - kjörskrá

Kjörskrá vegna alþingiskosninga 28. október  n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá og með 18. október og fram á kjördag í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar  í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.

Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.

Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá Þjóðskrá 23. septemer 2017.  Einnig er bent á vefinn https://www.kosning.is þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvar og hvort einstaklingur er á kjörskrá.

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá  í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar á opnunartíma fram á kjördag.

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð

Bjarni Th. Bjarnason.