Álagning fasteigna- og þjónustugjalda 2021

Álagning fasteigna- og þjónustugjalda 2021

Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Dalvíkurbyggð og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Einnig eru þeir aðgengilegar á island.is

Álagningar- og breytingarseðlar eru ekki sendir út á pappír, sbr. heimild í lögum nr. 4/1995. Þeir sem óska þess að fá álagningarseðil á pappír geta eftir sem áður sett sig í samband við þjónustuver í síma 460-4900 eða senda rafpóst á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is

Álagningin byggir á fasteignamati samkvæmt Landsskrá fasteigna frá 1. febrúar 2020.

Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur
Íbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.
Fasteignaskattur A 0,50% af fasteignamati húss og lóðar (var 0,50% árið 2020).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá.)
Sorphirðugjald kr. 46.162 á íbúð og kr. 23.081,- á frístundarhús (var kr. 44.948,- og kr. 22.474,-.)

Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur
Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005
Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkur
Aðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.
Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

Lóðarleiga
Lóðarleiga íbúðahúsalóða 1% af fasteignamati lóðar (lækkun um 0,28% milli ára).
Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).
Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).

Sjá hér efst á lista gjaldskrá fasteignaálagningar tengdra gjalda

Vatnsgjald
Hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:
a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 4.928,22 kr. pr. íbúð og 180,88- kr. pr. fermetra húss. (var kr. 4.798,66 og kr. 176,12 kr.)
b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 15.087,38 kr. pr. eign og 199,46 kr. pr. fermetra húss. (var kr. 14.690,73 og kr. 194,22)
c) Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum. (óbreytt)
d) Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,1% af fasteignarmati allra húsa og lóða. (óbreytt milli ára)

Sjá hér gjaldskrá Vatnsveitu 2021

Fráveitugjald
Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins.
a) Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 720,88- kr. pr. íbúð og 348,93 kr. pr. fermetra húss. (var kr. 16.281,29 og kr. 339,76)
b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 526,87 kr. pr. eign og 348,93 kr. pr. fermetra húss. (var kr. 37.513,99 og kr. 339,76 )
c) Árlegt rotþróargjald verði, fast gjald kr. 709,97 kr. pr. losunarstað og þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár er kr. 12.962,51 (var kr. 16.270,66 og kr. 12.621,72)
d) Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða. (óbreytt)

Sjá hér gjaldskrá Fráveitu 2021

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Ekki er þörf að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Sjá hér reglurnar fyrir 2021

Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.

Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dalvíkurbyggðar og í síma 460-4900