Ágústspá veðurklúbbsins

Veðurklúbburinn á Dalbæ hefur sent frá sér spá ágústmánaðar og segja örlítið fór úrskeiðis með seinni hluta júlí mánaða, fyrri hlutinn hafi hins vegar staðist all vel. Félagar trlja að vætusamt yrði fram yfir 12. ágúst, engar stórrigningar en eftir það þurrara í veðri og áfram milt. Tunglið kviknar 12.ágúst í n.n.v. Eitt sérálit kom fram, sem hljóðaði upp á vætutíð seinni hluta ágúst. Félagar telja að eftir 12. ágúst verði suðlægar áttir og senda frá sér bláberjakveðjur.