80 ára afmæli Veigu og í minningu jarðskjálftans

80 ára afmæli Veigu og í minningu jarðskjálftans

Nú stendur yfir í Bergi menningarhús myndlistasýning í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá mjög öflugum jarðskjálfta sem varð rétt utan Dalvíkur laugardaginn 2. júní 1934 en hann olli töluverðri eyðileggingu á húsum á svæðinu. Þann dag, fyrir 80 árum, fæddist stúlka rétt við upphaf skjálftans og fékk hún nafnið Sigurveig. Sigurveig, eða Veiga eins og hún er kölluð, hefur fetað slóð listarinnar stóran hluta ævi sinnar og því fannst henni tilvalið að opna sýningu á verkum sínum í Bergi á 80 ára afmælinu sínu þann 2. júní síðastliðinn. Þannig sló hún tvær flugur í einu höggi, hélt upp á 80 afmælið sitt og minntist um leið jarðskjálftans


Sýningin er sambland af landslagsmyndum og kyrralífsmyndum. Litirnir eru mjúkir og strokurnar mildar, næstum draumkenndar. Þannig vekja myndirnar hjá manni þægilega tilfinningu og vellíðan. Mann langar bara að setjast niður, vera og horfa.

Sýningin er opin til 3. júlí á opnunartíma hússins og eru þeir sem enn eiga eftir að sjá sýninguna hvattir til að líta við í Bergi þessa síðustu daga hennar.