50. þúsundasti gesturinn í sundlaugina.

50. þúsundasti gesturinn í sundlaugina.

Allt stefnir í að 50 þúsundasti gesturinn á árinu komi í sundlaug Dalvíkur nú rétt fyrir jólin. Má viðkomandi búast við því að verða leystur út með ýmsum óvæntum gjöfum. Aðsókn í Sundlaug Dalvíkur hefur verið mjög góð í ár og stefnir í að verða met. Þessa aukningu má m.a. rekja til mikils áhuga og góða ástundun í líkamsræktina. Rétt er geta þess 29. og 30. desember verður sundlaugin lokuð vegna framkvæmda. Geta þá þeir sem endilega vilja hreyfa sig, skroppið á skíði eða farið í góðan göngutúr.