Vetrarstarf á byggðasafni

Vetrarstarf á byggðasafni

Byggðasafnið verður opið á laugardögum kl.14.00 - 17.00  í vetur. Hægt er að hafa samband við forstöðumann ef hópar vilja heimsækja safnið utan opnunartíma.

Verið er að skrá muni safnsins í gagnagrunninn Sarp. Fyrir jól mun koma út heftið skemmtanir og dægradvöl í Dalvikurbyggð fyrr á tímum.

Sett verður upp í vikunni lítil sýning á jólaskrauti. Sóst var eftir að fólk í byggðalaginu lánaði safninu gripi til að nota í þessari sýningu, fáir höfðu samband svo munirnir eru að mestu úr eigu byggðasafnsins.