Rósaleppaprjón

Sunnudaginn 1.júlí mun Þuríður Sigurðardóttir kynna rósaleppaprjón á Byggðasafninu Hvoli. Hægt er að nota þessa gömlu íslensku tækni á margvíslegan hátt. Á safninu er nú yfirstandandi sýning á munum sem Helene Magnússon hefur prjónað og notað einungis rósaleppaprjón.