Opnun heimasíðu

Fimmtudaginn 1. júní opnar ný heimasíða byggðasafnsins. Síðan er ekki komin í endanlegt horf og mun á næstu mánuðum vaxa og dafna.

Laugardaginn 3. júní kl. 13.00 opnar safnið fyrir sumarið. Nokkrar konur úr byggðalaginu hafa safnað þjóðbúningadúkkum og mun vera hægt að skoða margar þeirra á nýrri smásýningu í risi.  Á opnunardag mun barnakór Dalvíkurskóla syngja og Leikfélag Dalvíkur bregður á leik.

Í sumar verður dagskrá hverja helgi á byggðasafninu. Dagskrána er hægt að skoða á heimasíðunni.