Handverksdagur á Hvoli

Handverksdagur á Hvoli

Laugardaginn 24. júní var handverksdagur á Hvoli. Þar var samankomið handverksfólk úr byggðalaginu sem sýndi listir sínar. Þarna mátti skoða falleg þæfð sjöl, útsaum margskonar, skógerð, perluprjón tóstungur, gler og fleira. Það var margt um manninn og gestir þáðu kaffi og kleinur.