Funi - tónleikar með skyggnimyndasýningu

Funi - tónleikar með skyggnimyndasýningu

Bára Grímsdóttir og Chris Foster - Tónleikar með skyggnimyndasýningu í tilefni útgáfu plötunnar

Byggðasafnið Hvoll, Dalvík - laugardaginn 15. júní kl. 14.00

Flúr er nýútgefin hljómdiskur frá dúettinum Funa sem inniheldur lítt þekkta, gullfallega, íslenska þjóðlagatónlist. Á tónleikunum flytja þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster m.a. lög af Flúr, en þau skipa Funa. Bára og Chris syngja bæði og auk þess leikur Bára á finnskt kantele, en Chris spilar á gamla íslenska hljóðfærið, langspil og á gítar, sem er þó stilltur öðruvísi en venjulegt er. Á diskinum Flúr er að finna nokkur ný lög eftir Báru Grímsdóttur sem fæst hafa verið hljóðrituð til útgáfu fyrr. Meirihlutinn eru þó kvæðalög, tvísöngslög og sálmalög sem fundist hafa í ýmsum gömlum heimildum og eru flutt í útsetningum Báru og Chris. Textarnir eru bæði nýir og gamlir, allt frá þjóðkvæðum og sálmum frá 16. öld til kvæða eftir Grím Lárusson frá Grímstungu, föður Báru. Umgjörð disksins er vönduð og með honum fylgir veglegur bæklingur á íslensku og ensku.

Skyggnusýning fylgir tónlistinni á tónleikum. Þar eru ljósmyndir úr eign safni þeirra Báru og Chris ásamt eldri myndum úr fjölskyldualbúmum og öðrum söfnum. Myndirnar eru valdar í samhengi við efni söngvanna og bæta þannig hinu sjónræna við upplifun áheyrenda. Þetta eykur heildaráhrifin af tónleikum FUNA, bæði á íslenska og erlenda áheyrendur.

Bára Grímsdóttir ólst upp við söng og kveðskap, heyrði og lærði allt frá barnæsku kveðskap foreldra sinna, afa og ömmu á bænum Grímstungu í Vatnsdal. Bára er af mörgum talin vera einn allra besti túlkandi þjóðlegrar tónlistar hér á landi, en hún hefur sérstakan áhuga á rímnastemmum og kvæðalögum. Hún hefur fengist við flutning á margs konar þjóðlagatónlist bæði hér heima og erlendis. Sem tónskáld og útsetjari, hefur Bára nýtt sér uppsprettulindir íslenskra þjóðlaga til skapandi starfs en hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar sem tónskáld.
Chris Foster kynntist þjóðlögum í uppvexti sínum í Somerset í Suðvestur-Englandi. Flutningur hans einkennist af mikilli og persónulegri innlifun í tónlistina, sem oft leiðir til þess að áheyrendur verða beinir þátttakendur í því sem fram fer og flutt er. Chris hefur sett þjóðlagahefðina í nútímalegan búning með sérstæðum, frumlegum gítarundirleik og sannfærandi söngtúlkun. Hann er talinn einn besti listamaður síðari tíma á sínu sviði og í frestu röð merkra brautryðjenda í endurvakningu á breskri þjóðlagatónlist.
Nánari upplýsingar og til að hlusta:

www.funi-iceland.com


Sími: Bára - 694 2644 / Chris - 659 1947  Netfang: funi.iceland@gmail.com