Byggðasafnið Hvoll um páskana

Um 100 gestir komu á byggðasafnið um páskana. Safnið var opið þrjá tíma á dag í þrjá daga. Heimamenn voru í meirihluta og er það ánægjulegt. Vegna snjóleysis var meiri ástæða til að heimsækja safnið. Fólk gaf sér góðan tíma að skoða fjölbreyttar sýningar safnsins og það var boðið upp á kaffi.