Staða náms- og starfsráðgjafa laus til umsóknar

Staða náms- og starfsráðgjafa laus til umsóknar

Dalvíkurskóli leitar að náms- og starfsráðgjafa       

Hæfniskröfur:

-          Leyfi til að nota starfsheitið náms- og starfsráðgjafi
-          Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
-          Leiðtogahæfileikar
-          Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-          Hæfni í mannlegum samskiptum og nær vel til barna
-          Þekking á skólastarfi og skólaþróun

Umsóknarfrestur er til 24. júlí 2019

Upplýsingar gefur Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla fridrik@dalvikurbyggd.is símar 4604983 og 8490980. Umsókn ásamt ferilskrá skal sent á netfangið fridrik@dalvikurbyggd.is.

Dalvíkurskóli er 220 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – Virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi og PALS. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins og dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.