Lausar stöður við Dalvíkurskóla

Lausar stöður við Dalvíkurskóla

Dalvíkurskóli auglýsir eftir kennara (íþrótta- og stærðfræðikennsla 80%) og náms- og starfsráðgjafa (50%).

Menntun og hæfni kennara:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hæfni í kennslu stærðfræði á unglingastigi
  • Starfsreynsla á grunnskólastigi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi fyrir teymiskennslu
  • Áhugi á notkun tækni í skólastarfi

 

Menntun og hæfni náms- og starfsráðgjafa:

  • Leyfi til að starfa sem náms- og starfsráðgjafi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
  • Þekking og áhugi á nýjungum í náms- og starfsráðgjöf
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og frumkvæði í starfi

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og meðmæli. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Umsóknarfestur er til og með 14. maí 2021.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/dalvikurskoli.

Dalvíkurskóli er 214 barna grunnskóli sem leggur áherslu teymiskennslu og góð samskipti. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni – virðing og vellíðan. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri, sími 460 4980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.