Sumaráhrifin og nokkrar hugmyndir að úrræðum

Sumaráhrifin og nokkrar hugmyndir að úrræðum

Sumarlestur

Senn líður að langþráðu sumarfríi og eflaust margir nemendur farnir að telja niður dagana í frelsið sem fylgir því að losna undan oki skólarútínunnar.

Sumarfríin eru nauðsynleg og uppábrotin á tilveruna mikilvæg. Að því sögðu eru nokkur atriði sem okkur á bókasafninu langar að vekja sérstaka athygli á.  

Þegar kemur að lestri og lestrarfærni hefur verið um eitthvað sem kallast sumaráhrif. Með því er átt við þá afturför í lestrarþróun barna sem á sér stað í sumarfríi þegar þau eru fjarri kennslustofu og njóta ekki markvissrar lestrarkennslu.

Áhrifin eru mun meiri en margann grunar. Rannsóknir hafa sýnt að afturför í lestrarfærni getur numið einum til þremur mánuðum yfir sumarið. Þannig má segja að um leið og stigin eru tvö skref áfram er á sama tíma eitt stigið aftur. Færð hafa verið rök fyrir því að uppsöfnuð sumaráhrif við lok 6. bekkjar geti numið allt að eins og hálfs árs afturför í lestrarfærni. Lestrarleysi yfir sumartímann hefur einnig áhrif á vöxt orðaforða og getu til að takast á við næsta bekk eða námsstig.

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að það er auðvelt að sporna gegn þessu, sérstaklega ef foreldrar eru meðvitaðir um áhrifin.

Rannsóknir hafa sýnt að það ætti að vera nóg að lesa um 4-5 bækur yfir sumarið. Mikilvægt að grunnskólar og bókasöfnin vinni saman að því að draga sem mest úr sumaráhrifum með fjölbreyttum og margvíslegum hætti. Foreldrar eru helstu lestrarfyrirmyndir barna sinna og því ekki síst mikilvægt að foreldrar sýni gott fordæmi og taki sér lestrarbók í hönd í sumar. Það er mikilvægt að börnin fái verkfæri, leiðir, stuðning og eftirfylgni við lesturinn, bæði frá foreldrum og okkur á bókasafninu.

Til þess að ýta enn frekar undir þátttöku foreldra höfum við á bókasafninu sett saman nokkrar leiðir þar sem börn og fullorðnir geta notað og notið saman. Því til dæmis má nefna:

  • Sumarlestur

    • Barn og foreldri/forráðamaður koma saman á bókasafnið og gera samning við starfsmann um hversu margar bækur skuli lesa yfir sumarið. Eftir hverja lesna bók skrifar lestrarhesturinn stutta umsögn og gefur bókinni stjörnur eftir því hvernig þeim líkar bókin. Að tímabilinu loknu fá allir sem stóðu við samninginn viðurkenningarskjal og fara sjálfkrafa í verðlaunapott þar sem einn heppinn lestrarhestur hlýtur smá glaðning í lok sumars. Það er því til mikils að vinna. 

  • Bókaskjóður

    • Líkt og síðasta sumar verður hægt að nálgast bókaskjóður á bókasafninu. Bókaskjóður eru hálfgerðir óvissupokar sem innihalda lesbók um ákveðið efni, einhverja fræðibók um sama efni, leikfang sem tengist efninu og ýmis tilmæli sem ættu að hrista upp í lestrinum. Lesbókina ætti barnið sjálft að geta lesið en fræðibókin er ætluð foreldrum til að lesa með barninu. Það er okkar von að Bókaskjóðurnar komi til með að hvetja til enn frekari lesturs, sköpunar og fróðleiksfýsnar. Þar að auki er það okkar von að verkefnið hvetji báða/alla foreldra til þess að lesa meira með börnunum sínum og ræða við þau um innihald lestursins. Nánari upplýsinga um Bókaskjóðurnar er að vænta von bráðar. Fylgist spennt með!

  • Ferðavísar

    • Frá og með 1. júní verður hægt að nálgast ferðavísi á bókasafninu sem inniheldur skemmtilegar leiðir til að brjóta upp á lesturinn á ferðalögum í sumar, innan sem utanlands. Frábær leið fyrir foreldra til að hvetja börnin til lesturs í sumar.

  • Að lokum mun Bókasafn Dalvíkurbyggðar svo auðvitað standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í allt sumar fyrir alla fjölskylduna sem efla þannig og styrkja samfélagslæsi.

 

Hægt er að skrá sig STRAX í sumarlestur (líka hægt að skrá sig í allt sumar) en átakið hefst formlega 1. júní.

 

Nánar verður fjallað um möguleika og úrræði hér á heimasíðunni á næstu dögum. Fylgist endilega með okkur á facebook þar sem nýjar fréttir koma inn nánast daglega og svo erum við mjög virk á instagram líka. Nú fer sumarið að hellast yfir okkur með viðeigandi sprelli og ætti enginn að vera svikinn af því að vera vinur okkar á samfélagsmiðlum.

 

Lestur er bestur!

Sumarkveðjur frá starfsfólki Bókasafns Dalvíkurbyggðar!