Sumarafleysing á söfnum Dalvíkurbyggðar og Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn

Safnastarf Dalvíkurbyggðar iðar af lífi á sumrin!
Safnastarf Dalvíkurbyggðar iðar af lífi á sumrin!

Við leitum nú að þremur einstaklingum sem hafa áhuga á því að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi í sumar. Um er ræða 3 x 90% stöður auk helgarvinnu en störfin eru unnin í Bergi Menningarhúsi, á bókasafni, byggðasafni og upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Starfsmenn rúlla á milli allra starfsstöðva og öðlast þannig innsýn í heim ferðaþjónustunnar og grunnþætti safnastarfs í sveitafélaginu.

Hæfnikröfur

  • Góð tungumálaþekking, helst í máli og riti.
  • Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér ný forrit.
  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi.
  • Sveigjanleiki og vilji til að prófa nýja hluti.
  • Geta unnið a.m.k. aðra hvora helgi.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun er kostur.
  • Reynsla af safnastarfi og upplýsingagjöf er kostur.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í enda maí og geti unnið fram í byrjun september (eða samkvæmt samkomulagi).

Um er að ræða nýjung á menningarsviði - einstaklega gefandi og spennandi starf fyrir rétta einstaklinga!

 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á netfangið bjork@dalvikurbyggd.is merkt: „sumarafleysing safna og upplýsingamiðstöðvar“. Ásamt umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.

Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Samband íslenskra sveitafélaga og KJALAR.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Hólm, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs í síma 460-4931 eða á netfangið: bjork@dalvikurbyggd.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.