Söfn Dalvíkurbyggðar auglýsa lausa til umsóknar 75% stöðu starfsmaður safna.

Söfn Dalvíkurbyggðar auglýsa lausa til umsóknar 75% stöðu starfsmaður safna.

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur áhuga á því að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi og er opinn fyrir því að þróa áfram safna- og menningarstarf í Dalvíkurbyggð.

Um er að ræða tímabundið starf vegna afleysingar, allt að 12 mánuðir. Starfið dreifist hlutfallslega á Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Byggðasafnið Hvol og Héraðsskjalasafn Svarfdæla. Vinnutíminn er frá kl. 11.00 - 17.00 alla virka daga en að auki býðst að taka einstaka helgarvaktir á bókasafni. Næsti yfirmaður er forstöðumaður safna.

 

Starfssvið og helstu verkefni

  • Dagleg og almenn störf á Bókasafni Dalvíkurbyggðar
  • Taka á móti viðskiptavinum safna, leiðbeina þeim og aðstoða eftir fremsta megni.
  • Skráning bókakosts í gagnasafnið Gegni.
  • Skráning, flokkun og frágangur safnkosts á Héraðsskjalasafni Svarfdæla.
  • Skráning á safnkosti Byggðasafnsins Hvoli í gagnagrunninn Sarp.
  • Aðstoð við skipulagningu viðburða.
  • Tilfallandi verkefni á öllum söfnum.
  • Kynningarmál, aðallega í gegnum samfélagsmiðla safnanna.
  • Önnur verkefni falin af forstöðumanni safna.

 

Menntun og hæfnikröfur

  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi
  • Sveigjanleiki og vilji til að prófa nýja hluti.
  • Góð tungumálaþekking, helst í máli og riti (enska og Norðurlanda tungumál).
  • Góð tölvukunnátta, þekking á samfélagsmiðlum og færni til að tileinka sér ný forrit.
  • Góð færni í félagslegum samskiptum og áhugi menningarmálum.
  • Reynsla af safnastarfi og upplýsingagjöf er kostur.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun.

 

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok ágúst eða í byrjun september.

Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga og KJALAR.

 

Umsóknarfrestur er til 9. Ágúst 2021.

 

Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar - Mín dalvíkurbyggð (min.dalvikurbyggd.is). Ásamt umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Hólm, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs í síma 460-4931 eða á netfangið bjork@dalvikurbyggd.is.