Laus staða leikskólakennara og stuðningsfulltrúa

Laus staða leikskólakennara og stuðningsfulltrúa

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest um stöðu leikskólakennara til og með 26. júní. Árskógarskóli leitar einnig að stuðningsfulltrúa á leikskóla.

Leikskólakennari, menntun og hæfni:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
  • Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð færni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Góð íslenskukunnáttu æskileg

 

Stuðningsfulltrúi, hæfni:

  • Góð færni í mannlegum samskipum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Góð íslenskukunnáttu æskileg

Umsóknarfrestur er til 26. júní og ráðið er frá 11. ágúst.

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ eða viðkomandi stéttarfélags. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

Frekari upplýsingar veita Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 og 849 0980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is og Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildarstjóri í síma 460 4970 eða í netpósti jona@dalvikurbyggd.is.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 15 börn á leikskólastigi og 22 nemendur í 1. – 7. bekk. Í skólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og mikið samstarf við leikskólann. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskólar og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.