MIO Stærðfræði

MIO - stærðfræði

Nemendur í leikskóla eru umkringd stærðfræði alla daga, þau kanna hana og nota í mörgum af sínum viðfangsefnum. Í Krílakoti er lagt áherslu á að nemendur öðlist reynslu af stærðfræðinni í gegnum daglegar athafnir og leik. 

Til að kennarar geti mætt hverjum nemenda þar sem hann er staddur í þroska er nauðsynlegt að vita nokkuð um stærðfræðifærni þeirra. Þetta á bæði við um nemendur sem búa við góðan þroska jafnt sem þeir nemendur sem þarf að vinna sérstaklega með.  Í Krílakoti notum við skimunarverkefni í MIO en það tekur mið af inntaki í stærðfræði nemenda . 

MIO tekur mið af þremur þáttum:

M- stærðfræði

I- einstaklingurinn sem er að tileinka sér stærðfræði

O - aðstæðurnar sem gefa nemandanum tækifæri til að öðlast reynslu af stærðfræði og styðja við stærðfræðiþroska þeirra.

Með því að skrá í MIO geta kennara áttað sig betur á þeirri stærðfræðifærni sem nemandi hefur tileinkað sér.  MIO hjálpar einnig til við að skipuleggja vinnuna í leikskólanum þannig að barnið þroski áfram skilning sinn á stærðfærði.