Aníta 3 ára

Aníta 3 ára

Á morgun, 11. mars, á Aníta afmæli og verður 3 ára gömul. Við héldum upp á afmælið hennar á Sólkoti í dag.

Aníta bjó sér til fallega kórónu og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins. Í ávaxtastundinni bauð hún upp á ávexti úr ávaxtakörfunni og við sungum fyrir hana afmælissönginn, hún hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.

Við óskum Anítu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.