
Börn og starfsfólk Krílakots vill hugsa vel um náttúru og umhverfi okkar allra.
Nánar:
Pappír: Við setjum allan pappír í endurvinnslu, fernur, eggjabakka. Pappír utan af morgunkorni er nýttur í föndur og dýr litaður pappír er notaður í algjöru lágmarki.
Endurnýting: Við nýtum það sem til fellur í föndur; eins og plastílát, tölur, tappa, dósir, íspinnaprik, íspinnakassa, tvinnakefli og margt, margt fleira.
Ræktun: Við viljum sá t.d. sumarblómum og grænmetisplöntum með börnunum að vori.
Vettvangsferðir: Leikskólinn er einstaklega vel staðsettur, stutt er í móa, fjöru, brekku, tjörn og svo margt fleira. Við þurfum aðeins yfir eina götu til að komast í berjalyng og fjallanáttúru.
Fræðsla: Börnin eru frædd um náttúruna, endurnýtingu, plöntur og dýr í hópastarfi.
Umhverfisdagur: Í maí, eftir að snjóa leysir, höfum við umhverfisdag. Við hreinsum til inni á leikskólalóðinni og í trjárunnunum austan við garðinn.
Rafmagns- og vatnsnotkun: Við ætlum að nota rafmagn og vatn á skynsamlegan hátt; þ.e. ekki láta vatn renna að óþörfu og að draga úr ljósanotkun þar sem við á.
Annað: Við saumum sjálfar smekki, þvottastykki og taupoka svo eitthvað sé nefnt, í stað þess að kaupa inn. Þetta er að langmestu leiti saumað úr gömlum handklæðum, rúmfötum, gardínum og öðru sem heimilin gefa okkur.
Við notum gamla boli í málningar- og föndurvinnu í bland við svuntur.
Við gefum matarafganga í húsdýrafóður eins og kostur er.
Við nýtum poka undan bleyjum undir rusl og brauðpoka undir pappírsbleyjur.
Við tökum vel á móti foreldrum sem nota taubleyjur.
Karlsrauðatorg 23
620 Dalvík
Sími: 466 1372
Fax: 460-4901
Leikskólastjóri:
Drífa Þórarinsdóttir
krilakot@dalvikurbyggd.is