Umhverfisráð

300. fundur 15. janúar 2018 kl. 16:15 - 18:15 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs
Dagskrá

1.Aukin vetrarþjónusta og hálkuvarnir í Svarfaðardal

Málsnúmer 201801038Vakta málsnúmer

Til umræðu boðuð aukin vetrarþjónusta og hálkuvarnir í Svarfaðardal.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar fagnar því að Vegagerðin sjái nauðsyn til þess að auka við snjómokstur í Svarfaðardal.
Ráðið furðar sig hinsvegar á því í hverju aukningin á snjómokstri er fólgin, hún mun ekki nýtast öllum íbúum í Svarfaðar- og Skíðadal.
Það er með hreinum ólíkindum að Vegagerðin skuli leyfa sér að mismuna íbúum dalanna um umferðaröryggi eftir því hvar þeir búa. Það fer skólabíll í báða dalina alla virka daga og einnig sækja íbúar þar vinnu til Dalvíkur.
Í báðum dölunum eru ferðaþjónustufyrirtæki sem þurfa á góðri vetrarþjónustu að halda. Einnig má geta þess að á þeirri leið sem Vegagerðin leggur til að aukin þjónusta verði, eru einungis tvö af tólf mjólkurbúum í dölunum og sækir mjólkurbíllinn mjólk á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.
Umhverfisráð gerir kröfu um að í fyrirhuguðu snjómoksturútboði verði gert ráð fyrir sjö daga þjónustu í Svarfaðardal og Skíðadal og búið verði að moka áður en skólabíllinn kemur kl. 07:30.

Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar skorar á þingmenn kjördæmisins, Samgönguráðherra og Vegamálastjóra að beita sér fyrir ofangreindum tillögum ráðsins.

Samþykkt með fimm atkvæðum.

2.Endurheimt og varðveisla votlendis á Íslandi - lykilhlutverk sveitarfélaga

Málsnúmer 201712085Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Landgræðslu ríkisins, dagsett þann 12. desember 2017, þar sem Landgræðsla ríkisins hvetur sveitarstjórnir til að kynna sér upplýsingar um votlendi, virkni þess og mikilvægi og minnir á þær skyldur sem á sveitarstjórnum hvíla varðandi leyfisveitingar ef raska á eða ræsa fram votlendi.
Lagt fram til kynningar.

3.Vinnsla á lífrænum úrgangi til orku- og næringarefnavinnslu

Málsnúmer 201801026Vakta málsnúmer

Til kynningar erindi dags. 9. janúar 2018 frá Landbúnaðarháskóla Íslands vegna möguleika á þáttöku sveitarfélagsins í tilraunarverkefni er varðar fullnýtingu á lífrænum úrgangi.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar lýst vel á verkefnið og óskar eftir að fá fulltrúa umhverfis- og auðlindadeildar LBHÍ til fundar við ráðið.
Samþykkt með fimm atkvæðum

4.Umsókn um lóðina Hringtún 40, Dalvík

Málsnúmer 201801039Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 10. janúar 2018 óskar Ævar Bóasson eftir lóðinni Hringtún 40, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

5.Umsókn um lóð við Hringtún 26, Dalvík

Málsnúmer 201801011Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 27. desember 2017 ósar Súsanna Svansdóttir eftir lóðinni Hringtún 26, Dalvík.

Karl Ingi Atlason lýsti sig vanhæfan og vék af fundi kl. 17:20
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

6.Umsókn um lóð við Sjávarbraut 6, Dalvík.

Málsnúmer 201801037Vakta málsnúmer

Karl Ingi Atlason kom aftur inn á fundinn kl. 17:23

Með innsendu erindi dags. 10. janúar 2018 sækir Gestur Geirsson fyrir hönd Samherja Ísland ehf eftir lóðinni Sjávarbraut 6, Dalvík.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að ganga frá lóðarleigusamningi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

7.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201801040Vakta málsnúmer

Með innsendu erindi dags. 21. desember 2017 óskar Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Samherja Ísland ehf eftir byggingarleyfi við Sjávarbraut 2 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur sviðsstjóra að veita umbeðið byggingarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

8.Óveruleg breyting á Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íþróttasvæðis á Dalvík.

Málsnúmer 201801050Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Viðfangsefni aðalskipulagsbreytingar er m.a. sameining og breyting á landnotkunarreitum.
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að auglýsa aðalskipulagsbreytingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillaga skal send Skipulagsstofnun til yfirferðar áður en hún er auglýst.
Samþykkt með fimm atkvæðum

9.Deiliskipulag íþróttasvæðis 2017

Málsnúmer 201708069Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi. Skipulagsgögn eru greinargerð, skipulagsuppdráttur og skýringaruppdráttur dags. 15. janúar 2018
Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fimm atkvæðum

10.Deiliskipulag Hóla og Túnahverfis, Dalvík

Málsnúmer 201710029Vakta málsnúmer

Deiliskipulag Hóla- og Túnahverfis á Dalvík.
Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 30. nóvember 2017 með athugasemdafresti til 12. janúar 2018. Athugasemdir bárust frá fjórum aðilum á auglýsingatíma, þar af var ein þeirra í formi undirskriftalista frá íbúum Túnahverfisins.
Umsagnir frá umsagnaraðilum voru án athugasemda.
Afgreiðslu frestað.
Farið var yfir framkomnar athugasemdirnar og sviðsstjóra og skipulagsráðgjafa falið að ræða við málsaðila og senda svarbréf.

Fundi slitið - kl. 18:15.

Nefndarmenn
  • Haukur Gunnarsson Formaður
  • Karl Ingi Atlason Aðalmaður
  • Guðrún Anna Óskarsdóttir Aðalmaður
  • Friðrik Vilhelmsson varaformaður
  • Marinó Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Börkur Þór Ottósson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði: Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri Umhverfis- og tæknisviðs