Fræðsluráð

214. fundur 08. mars 2017 kl. 08:15 - 10:30 í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots og Ágústa K. Bjarnadóttir, leikskólastjóri Krílakots sátu fundinn undir liðum 1-3. Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, sat fundinn undir liðum 2-5. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskólanna, sátu fundinn undir liðum 2-6.
Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna á leikskólunum og Freyr Antonsson, fulltrúi foreldra leikskólabarna komu ekki á fundinn og enginn kom í þeirra stað.

Guðrún Halldóra og Ágústa komu til fundar klukkan 8:15.

1.Beiðni um fjölgun stöðugilda á Krílakoti

Málsnúmer 201703003Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi greinargerð Hlyns Sigursveinssonar, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, þar sem gerð er grein fyrir aukinni sérkennsluþörf í leikskólanum sem nemur einu stöðugildi. Auk þess vantar, vegna fyrirséðra langtímaveikinda og aðstæðna á leikskólanum, starfsmann í 100% stöðu fram að sumarlokun leikskólans og annan í 100% stöðu til áramóta.



Fræðsluráð samþykkir erindið með 5 atkvæðum og felur Hlyni Sigursveinssyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarmála, að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja það síðan fyrir byggðaráð Dalvíkurbyggðar.





Gísli, Gunnþór og Guðríður komu til fundar klukkan 8:39

2.Skóladagatöl 2017-2018

Málsnúmer 201702046Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdu tillögur að skóladagatali Árskógarskóla og Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2017-2018. Tillaga að skóladagatali Krílakots fyrir skólaárið 2017-2018 var lagt fram á fundinum.
Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og Krílakots með 5 atkvæðum.

3.Fríar flensusprautur fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla

Málsnúmer 201703001Vakta málsnúmer

Í ljósi erfiðrar stöðu sem getur skapast þegar árlegur flensufaraldur gengur yfir leitaði Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, álits fræðsluráðs á því hvort bjóða ætti starfsmönnum skólanna í Dalvíkurbyggð flensusprautur þeim að kostnaðarlausu.
Fræðsluráð mælir samhljóða með að starfsmönnum allra skólanna standi slíkt til boða og gert verði ráð fyrir þessu við gerð næstu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
Guðrún Halldóra og Ágústa fóru af fundi klukkan 9:15.

4.Innleiðing á nýjum námsmatskvarða við lok grunnskóla

Málsnúmer 201702058Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu dags. 7. febrúar 2017 þar sem áréttað er að frá og með vori 2017 skulu allir grunnskólar með 10. bekk hafa lokið innleiðingu á nýjum námsmatskvarða A-D við lok 10. bekkjar grunnskóla.
Gísli Bjarnason gerði grein fyrir stöðunni í Dalvíkurskóla en þar var s.l. vor unnið samkvæmt þessu kerfi við útskrift 10. bekkjar.

5.Vegvísir - verkáætlun 2017

Málsnúmer 201703002Vakta málsnúmer

Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kynnti vinnu sem farin er af stað í samstarfi Dalvíkurbyggðar og kennara við grunnskólana í að uppfylla ákvæði bókunar 1 í kjarasamningi grunnskólakennara. Með fundarboði fylgdi Vegvísir samstarfsnefdnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara vegna málefna grunnskólans og spurningalisti sem hafður er til hliðsjónar við að greina vinnuumhverfið í grunnskólanum. Fyrir 1. maí 2017 skulu fulltrúar sveitarfélags og fulltrúar kennara ásamt skólastjóra kynna kennurum umbótaáætlun sveitarfélagsins fyrir skólann. Fyrir 1. júní 2017 skal skila lokaskýrslu til samstarfsnefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
Gunnþór fór af fundi klukkan 9:40.

6.Námsárangur í Dalvíkurskóla

Málsnúmer 201503209Vakta málsnúmer

Með fundarboði fylgdi 34. og 35. fundargerð stýrihóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla.
Gísli og Dóróþea gerðu nánari grein fyrir því sem verið er að gera. Fræðsluráð fagnar öflugu starfi vinnuhópsins og starfsfólks Dalvíkurskóla.
Gísli og Guðríður fóru af fundi klukkan 9:50.

Fundi slitið - kl. 10:30.

Nefndarmenn
  • Steinunn Jóhannsdóttir formaður
  • Lilja Björk Ólafsdóttir varaformaður
  • Felix Rafn Felixson aðalmaður
  • Auður Helgadóttir aðalmaður
  • Kristinn Ingi Valsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
  • Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði: Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður fræðslu- og menningarsviðs