Sumarið 2012 mun Ferðafélag Svardæla í samvinnu við leiðsögumenn standa fyrir gönguviku um fjöll og láglendi í sveitarfélaginu eins og undanfarin sumur.
Hér fyrir neðan gefur að líta yfirlit yfir þær ferðir sem gengnar verða upplýsingar um verð koma inn síðar.
Vinsamlegat athugið að vegna snjóalaga og veðuraðstæðna getur þurft að breyta gönguleiðum með stuttum fyrirvara. Upplýsingar þess efnis munu birtast hér á síðunni og er fólk vinsamlegast beðið um að fylgjast með hér.
Laugardagur 23. júní
Gengið kringum Hnjótafjall
Lagt upp frá Kotabrúnni kl. 10:00. Farið í fótspor Guðmundar góða upp að Stóruvörðu, Heljarganga framhjá fjallinu Deili, horft niður Deildardal og Unadal. Skokkað yfir Unadalsjökul niður í Skallárdal að Atlastöðum. Um 8 til 9 tíma gangur.
Hugað að gömlum húsum á jónsmessu
Gönguferð um Karlsbraut og Karlsrauðatorgið í samstarfi við Byggðarsafnið Hvol, þar sem farið er yfir sögu húsa og mannlífs við göturnar. Lagt upp frá Hvoli.kl 20:00. Um eins og hálfs tíma rölt.
Gengið um Hamarinn, miðnæturganga
Lagt verður upp frá gömlu malarnámunum norðan við Skáldalæk kl 22:30. Gengið upp á Hamarinn. Þaðan blasir við fagurt útsýni inn í Svarfaðardal og ekki síður út yfir Dalvík og út Eyjafjörð. Miðnætursól og Jónsmessudögg. Um 2ja tíma ganga.
Sunnudagur 24. júní
Þverárdalur – Vatnsdalur
Gengið upp frá bænum Þverá í Skíðadal kl. 10:00 inn Þverárdal allt inn í botn. Þar er tekin 90° beyja upp í Vatnsdalsskarð sem skilur milli Þverárdals í Skíðadal og Vatnsdals í Svarfaðardal. Þegar upp í skarðið er komið blasa við Sandárskarð og Klaufabrekknaskarð hinu megin í dalnum. Komið niður hjá Koti eftir um 9 til 10 tíma göngu
Vatnsdalur – kring um Skeiðsvatn
Skeiðsvatn er ákaflega fallegt og fagurblátt fjallavatn.Vatnsdalur og svæðið við mynni hans hefur upp á fjölbreytt og fagurt landslag að bjóða. Gengið er eftir stikaðri leið frá Koti í Svarfaðardal kl.16:00, upp að vatni og í kringum það og aftur að Koti. Um 2ja tíma ganga, á allra færi.
Mánudagur 25. júní
Reykjaheiði með viðkomu í Mosa
Keyrt frá Sundlaug Dalvíkur kl. 10:00 að Reykjum í Ólafsfirði. Gengin er gamla póstleiðin milli Svarfaðardals og Ólafsfjarðar. Fallega vörðuð leið. Þegar yfir heiðina er komið er stefnan tekin á Mosa sem er nýr kofi Ferðafélags Svarfdæla. Þaðan er haldið niður dalinn og endað í Sundlaug Dalvíkur. Þessi ganga tekur um 7 til 8 tíma.
Melrakkadalur Álfaganga
Lagt upp frá bílastæði norðan Dalvíkurkirkju kl. 16:00. Brimnesá í fögru gljúfri. Framhlaupið Upsi og Melrakkadalur. Hulduheimar og huldusögur sem tengjast staðnum. Gangan tekur um einn og hálfan tíma. Hóparnir tveir sameinast við Sundlaug Dalvíkur og fara saman í sund.
Þriðjudagur 26. júní
Gengið á Kerlingu
Lagt er upp frá Melum í Svarfaðardal kl. 10:00. Stóllinn, Kerlingin, drottning svarfdælskra fjalla. Útsýni yfir byggð og bú. Nöfn rituð í gestabók. Geldingadalur og Hamrahnjúkur. Komið niður að Þverá í Skíðadal eftir 8 til 9 tíma göngu.
Kvöldganga um Hillur á Árskógsströnd
Keyrt að hreppamörkum Dalvíkurbyggðar og Arnaneshrepps, eða á hæðina milli bæjanna Fagraskógar og Rauðavíkur kl 20:00. Gengið upp á Hillurnar þangað sem kallast Vatnamýrar. Af Gráhjallahaus er gott útsýni. Kötluhóll er meintur fornmannahaugur. Hrærekshól er friðaður, enda segir sagan að þar hvíli norski fylkiskonungurinn, Hrærekur blindi. Endastöð við Árskóg um 4 tímum síðar.
Miðvikudagur 27. júní
Farið á Dýjafjallshnjúk
Gengið er frá Klængshóli í Skíðadal kl. 10:00 og haldið upp í Kvarnárdal og upp á egg, áfram eftir eggjum á Kvarnárdalshnjúk og áfram á Dýjafjallshnjúk. Dýjafjallshnjúkur er hæstur hnjúka við Dalvíkurbygð 1445 m. Fagurt útsýni yfið Tröllaskaga. Áætlað að þessi ferð taki um 9 til 10 tíma.
Fimmtudagur 28. júní
Gengið á Rima(r)
Farið upp frá bænum Hofi í Svarfaðardal kl 10:00, gengið upp með Hofsánni að Goðafossi, áfram upp með Hofsskálinni sunnanverðri með stefnu á fjallsöxlina milli Messuhnjúks og Rima. Af Rimum er víðsýnt í allar áttir yfir Svarfdælska byggð og vítt um Norðurland allt að Herðubreið. Ganga sem tekur um 8 til 9 tíma.
Skógarganga og ketilkaffi í Hánefsstaðareit
Lagt af stað frá hliði klukkan 17:00. Lesið í laufin og skógurinn skoðaður. Lagst í lund og ketilkaffi drukkið. Tveggja tíma fjölskyldustund.
Föstudagur 29. júní
Fossaganga í Sælulandi
Lagt upp frá Hlíð í Skíðadal kl. 10:00. Gengið norður með Skíðadalsá að Syðri-Sæluá, sem er fossafögur og hvítfreyðandi. Gengið upp með ánni og gróður skoðaður og greindur eftir megni. Fagurt útsýni yfir Skíðadal, mikil náttúrufegurð og fjölbreytt landslag. Komið niður aftur hjá Hlíð eftir 6 tíma göngu.
Krílaganga fyrir litla fætur upp með Holtsá
Lagt upp frá fjárúsahverfi norðan Holtsár kl. 16:00. Fjölskyldu lautarferð upp með Hóltsá að selrústum í skjólgóðum og fögrum hvammi. Þar verður sest niður og nesti snætt, sögustund og plöntuskoðum. Þessi ferð tekur um 2 tíma.
Laugardagur 30. júní
Strandganga á Árskógsströnd
Upphaf gönguferðar er frá hlaðinu á Hellu á Árskógsströnd kl. 10:00 og gönguleiðin er um Helluhöfða. Komum við í víkunum sjö við höfðann. Fjölbreytt fuglalíf og fagurgróinn náttúruperla. Eftir að hafa skoðað strandlengjuna er stefnan tekin á Árskógssand. Um 2ja tíma ganga á allra færi.
Sólarfjöll
Brottför kl. 19:00. Stefnt er að því að þessi ganga verði miðnætursólarganga og við verðum uppi á Sólarfjalli á miðnætti, böðuð miðnætursólinni. Upphaf ferðar er frá bænum Brattavöllum á Árskógsströnd. Gengið er upp meðfram Brattavallaframhlaupinu að hinum merku sólarsteinum og áfram upp á öxl Sólarfjalls eða Krossafjalls eins og það heitir öðru nafni. Þetta er þægileg ganga upp eggina og alla leið á toppinn. Þar blasir við okkur Eyjafjörðurinn í allri sinni dýrð, með perluna Hrísey fyrir fótum okkar. Gangan tekur um 7 til 8 tíma.
Sunnudagur 1. júlí
Friðlandsganga og Friðland fuglanna
Komið saman á Húsabakka í Svarfaðardal og þaðan haldið niður að Tjarnartjörn og fuglaskoðunarhúsi þar. Áfram haldið niður göngustíg að Svarfaðardalsá. Friðland Svarfdæla er fyrsta votlendisfriðlandið sem stofnað var hér á landi. Þar eiga sér varplönd allt að 35 tegundir fugla. Svarfaðardalsá er skemmtileg bleikjuveiðiá. Göngunni lýkur við Húsabakka og þar gefst fólki kostur á að skoða sýninguna “Friðland fuglana”. Um 2ja tíma ferð.
Leiðsögumenn:
Kristján Eldjárn Hjartarson
s. 846 8089
Anna Dóra Hermannsdóttir
s. 894 7788