Klassík í Bergi

Klassík í Bergi

Laugardaginn 18 febrúar kl. 15:00 verða tónleikar með frábærum listamönnum í Bergi.

Oddur Arnþór Jónsson, barítónsöngvari, og

Somi Kim píanóleikari flytja fjölbreytta dagskrá.

Oddur var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir hlutverk sitt í Don Carlo. Hann var tilnefndur sem söngvari ársins 2014 og 2015 á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir hlutverk sín í Don Carlo, Rakaranum í Sevilla og Solomon á Kirkjulistahátíð. 

Somi Kim býr og starfar í London eftir að hafa lokið námi við Royal Academy of Music í London. Hún hefur hlotið fjölmörg verðlaun á sínu sviði.

 Á efnisskránni verða íslensk, þýsk, frönsk og rússnesk sönglög.                                                      

Miðar seldir við innganginn eða í síma 8689393.

Verð 3.000.- Frítt fyrir 18 ára og yngri.

Upplýsingar berg@dalvikurbyggd.is,

og facebook Menningarhúsið Berg

Athugasemdir