Framkvæmdastjóri & veitingarekstur í menningarhúsinu Bergi

Framkvæmdastjóri & veitingarekstur í menningarhúsinu Bergi

Veitingarekstur í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík

Menningarfélagið Berg ses. auglýsir eftir rekstraraðila fyrir veitingarekstur í Menningarhúsinu Bergi Dalvík frá 1. nóvember 2016 eða samkvæmt samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2016.
Rekstraraðili veitingasölu hefur jafnframt séð um húsvörslu í Bergi.


Menningarhúsið Berg er staðsett í hjarta Dalvíkur. Þar er veitingarekstur með eldhúsi með grunnbúnaði, bókasafn og salur til ýmissa nota.
Menningarfélagið Berg ses. sér um rekstur hússins og alla almenna dagskrá. Starfsemin í húsinu hefur verið ölbreytt frá opnun þess s.s.
tónleikar, fundir, ráðstefnur, bíósýningar og sýningar af ýmsu tagi, en náin samvinna er á milli þeirra sem sjá um veitingareksturinn,
bókasafnsstjóra og framkvæmdastjóra Bergs um dagskrá hússins.
Æskilegt er að umsókninni fylgi hugmyndir um reksturinn og framtíðarsýn ásamt rekstrarlegum forsendum.
Félagið áskilur sér rétt til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum umsóknum sem berast.

Framkvæmdastjóri í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík

Menningarfélagið Berg ses. auglýsir eftir framkvæmdastjóra fyrir Menningarhúsið Berg á Dalvík frá 1. nóvember 2016 eða samkvæmt samkomulagi.
Um er að ræða 50% stöðu.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2016.

HÆFNISKRÖFUR
• Frumkvæði og þörf fyrir að ná árangri.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
• Reynsla eða haldgóð þekking á rekstri.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.

ÁBYRGÐARSVIÐ
• Ábyrgð á rekstri og starfsemi menningarhússins.
• Ábyrgð á framkvæmd stefnu Menningarfélagsins
Bergs ses.

HELSTU VERKEFNI
• Kynningarmál og auglýsingar.
• Utanumhald um viðburði í menningarhúsi s.s. hugmyndavinnu, skipulagningu og fjárhagslega umsýslu.
• Styrkumsóknir til starfsemi menningarhúss og stuðla að samstarfi á milli aðila.

Umsóknir, ásamt ferilskrá, berist til Grétu Arngrímsdóttur framkvæmdastjóra á netfangið berg@dalvikurbyggd.is  eða í pósti á heimilisfangið: Menningarfélagið Berg ses., Ráðhúsi Dalvíkur,
620 Dalvík.

Félagið áskilur sér rétt til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum umsóknum sem berast.

Allar frekari upplýsingar veitir Gréta Arngrímsdóttir framkvæmdastjóri í síma 868-9393 eða á netfangið berg@dalvikurbyggd.is.

Fyrir hönd stjórnar Menningarfélagsins Bergs ses.
Gréta Arngrímsdóttir, framkvæmdastjóri

Stjórn Menningarfélagsins Bergs vekur athygli á því að rekstur kahússins og staða framkvæmdastjóra eru störf sem geta hentað vel saman og því mögulegt að sækja um hvoru tveggja.

Athugasemdir