Samráðsdagur og vetrarfrí

Samráðsdagur og vetrarfrí

Góðan dag.

Minnum á að miðvikudaginn 15. febrúar er samráðsdagur grunnskólastigs og þá mæta nemendur og foreldrar saman í viðtal. Engin kennsla né skólabíll, eingöngu viðtal, en tímar hvers og eins eru í tölvupósti.

Fimmtudag og föstudag er svo vetrarfrí (meira kannski vorfrí eins og veðrið er!) og allir nemendur í fríi og skólinn lokaður.

Hafið það gott og sjáumst hress í skólanum.